Akademian

08.11.2007 00:22:16 / akademian

16.nóvember

Laugarvatn vs. Íþróttaakademían

Hvar verður þú föstudaginn 16. Nóvember?

Taktu daginn frá því þennan dag munnum við heimsækja Laugvetninga og etja við þá kappi í nokkrum stórskemmtilegum íþróttagreinum. Mun sigurveginn fá stórglæsilegan farandbikar í verðlaun. Laugarvatn vann okkur í bæði skiptin í fyrra og er því kominn tími til að hefna ófaranna og fá bikarinn heim.

Eftir keppnina verður síðan skemmtikvöld þar sem hvert ár frá hvorum skóla mun vera með skemmtiatriði. Í fyrra brilleraði Gunni Blenni með léttum vísnasöng. Keppni hefst stundvíslega klukkan 18:00 og er því gott að vera mættur aðeins fyrr........................

Ekki missa af þessu, þetta er bara gaman

Kv. Nemendafélag Atlas


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 13:46:38 / akademian

Gullboltinn

Gullboltinn 2007.

 

Keppt verður í Gullboltanum fimmtudaginn næstkomandi ( 27. september) í íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ.

Klukkan hvað: 12:30 - 14:00

Keppnisgreinar: Bandý - körfubolti og blak

Stigagjöf: Sigur = 2 stig  / jafntefli = 1 stig / ósigur = 0 stig

 

Gullboltinn er árlegur viðburður og 3. ár er handhafi Gullboltans í dag og ætla sér að verja titilinn!!

Kristján Halldórsson mun veita sigurvegurunum Gullboltann eftir keppni.

Allir að mæta !! Keppa eða styðja við bakið á sínu ári !


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 19:52:18 / akademian

HVAÐ SEGIÐI ÞARNA ÚTI....

 

...kíkir einhver hérna inn á lengur?? Sé að það eru allavega 8 heimsóknir í dag ;) 

Heyriði, langaði bara að senda smá kveðju að austan!!!

OG....vildi láta ykkur vita að þarnæstu viku (15-22 júlí) byrjar LungA á Seyðisfirði sem er stærsti viðburður sumarsins og um helgina verða fullt af tónleikum, DJ-ar og margt fleira. Á föstudeginum verða tónleikar og svo rokkabillí diskó með DJ Curver. Á laugardeginum verður tónleikaveisla sem byrjar klukkan 18 með Bloodgroup, Jeff Who?, Trabant, Mínus og fullt af fleiri flottum hljómsveitum og svo DJ partý-Lunga með fullt af DJ-um, m.a einn frá Frakklandi. Þannig að EF þið skylduð eiga leið hjá eða hafið ekkert að gera þá mæli ég eindregið með að þið kíkið austur, kostar 6000 kall að hoppa og svo tekur það "ekki nema"   7-8 tíma að keyra, gæti meira að segja reddað gistingu!! Endilega kíkið á þetta á www.lunga.is 

Væri geðveikt gaman að sjá ykkur, annars sjáumst við í ágúst

Hafið það rosa gott

 kv, Dagný


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 13:05:24 / Sigurlaug

Myndir óvissuferð ´07

Hérna eru myndirnar sem ég tók í óvissuferðinni :D

 

Takk fyrir frábæra ferð og hafið það gott í sumar :D
 
kv.Sigurlaug 

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 14:08:08 / Sigurlaug

Blað akademíunnar


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 22:19:21 / akademian

Óvissuferð íþróttafræðinema !

 

 

 

Taka 1

Taka 2 hérna að ofan ;)

 

Hérna eru allaveganna nokkrar myndir. ;) Það kemur meira seinna ;)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 15:17:19 / akademian

Óvissuferð 9. maí

ÓVISSUFERÐ -- ÓVISSUFERÐ -- ÓVISSUFERÐ
Jæja þá er komið að því að taka við skráningu í Óvissuferðina
Skráningarfrestur er til 1. maí
Þeir sem ætla að koma með eru beðnir um að senda mail á Sóley ( oleym05@ru.is" target= "_blank">soleym05@ru.is ;)
Farið verður frá Háskóla Reykjavíkur Miðvikudaginn 9. maí kl.14.00, sama dag og síðasta prófið (sérkennslan)
Við skellum okkur fljótlega eftir próflokafagnaðinn þar sem Kennslufræði og lýðheilsudeild (KLD) býður okkur uppá léttar veitningar sem hefst kl 12:00.
Kostnaður verður 2.500 og innifalið í því er skemmtun, matur, drykkir og rúta
Nú er síðasta tækifærið á því að skemmta sér rækilega með skólafélögunum.
Við vonumst eftir því að þú látir það eftir þér að koma með
Þeir sem fóru með síðast láta sig ekki vanta í ár :)
Kær Kveðja
Sóley og Strákarnir

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 18:35:47 / akademian

Partý

MEGA-partý
Þér er boðið í megapartý hjá Gunna á 2. ári aka Gunni Blennikall laugardaginn 14. apríl. Partýið verður haldið í flottu einbýlishúsi í Einarsnesi 33 í Skerjafirði 101 Rvk. Mæting uppúr 19:00 og verður mætingarlistinn látinn ganga;)
Það verður MEGA STUÐ allir að mæta og taka vel á því fyrir prófin.
Það verður keppni um eftirfarandi:
  • Flottasti hatturinn!
  • Ljótasta bindið!
Vegleg verðlaun í boði!!!
Það verður bílabolla á staðnum (fyrir þá vitleysinga sem vita ekki hvað bílabolla er að þá er það óáfeng bolla fyrir þá sem drekka ekki eða eru að keppa, þjálfa, æfa eða hvað sem er).
Opið partý fyrir alla í íþróttafræði, makar velkomnir. Vinalimit 1-2 með;)
Engin afsökun fyrir að mæta ekki, lyftum þakinu af helvítis húsinu og slettum úr klaufunum.
Skemmtiatriði:
Villi á 1. ári sýnir Pimps n' Hoes dansinn;)
Nánari uppl. gefur Gunni í síma 868-6687
Hvar: Einarsnes 33
Skerjafjörður
101 Rvk
Klukkan: 19:00 og frameftir nóttu!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 10:02:24 / akademian

Vísindaferð

Næstkomandi föstudag er Vísindaferð í Landsbankann, Hafnarstræti 5 í downtown Rvk, Það verður tekið á móti okkur kl 17:00 og fáum við létta kynningu á starfsemi bankans ásamt drykkjum og meðlæti til kl 19:00.

Eftir vísindaferðina verður síðan um kvöldið sameiginlegt djamm hjá öllum deildum í HR í tilefni kosninganna.

Láttu þig ekki vanta!

Kv. Stjórnin


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 17:33:40 / akademian

Kosningar

Hægt er að kynna sér framboð í embætti fyir skólaárið ´07-´08 í HR kíkið á þetta og ekki gleyma að kjósa!

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 11:14:23 / akademian

kroppur.is

Við riðum nú engum feitum hestum frá þessum íþrottadegi enda laugvetningar almennt ekki mjög smjöraðir.

En það er greinilegt að við þurfum að taka okkur á og hvetjum við alla til að skoða nýja tengilinn okkar www.kroppur.is til þess að bæta sig fyrir næsta ár. Það getur ekki verið boðlegt að tapa trekk í trekk fyrir laugarvatni í íþróttum og stelpur, þið töpuðuð öllum ykkar viðureignum :(


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 21:26:27 / akademian

Íþróttamót á móti Laugvetningum

ÍÞRÓTTADAGUR

ÍAK vs ÍKHÍ

Akademían vs Laugarvatn

 

J Íþróttadagur verður Föstudaginn 2. mars

 

J ÍþróttaAkademían í Reykjanesbæ

Dagskrá hefst kl 18.00

 

J Keppt verður í

Bandý

Körfubolta

Blaki

Einhver Sérkennslugrein

J Kynjaskipt Lið

Leiktími 2*10 mínútur í Bandý og Körfu

 

J Matur hefst síðan um kl. 20.30

J Létt og skemmtileg skemmtiatriði

J spurningakeppni milli skóla

J Klukkan 23.00 verður síðan haldið yfir á skemmtistaðinn H.INN, þar heldur fjörið áfram fram eftir kvöldi, þrusu tilboð á barnum


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.01.2007 22:48:03 / akademian

Fiskisagan mikla

Hæhæ allir

Flestir hafa nú örugglega heyrt af þessu ...því fljótt flýgur fiskisagan:haha:

En ég hef ákveðið að heiðra ykkur ekki með nærveru minni á þessu ári..ég veit greyið þið:o) þó kanski ekki í bókstaflegri merkingu því mér var sko lofað að ég fengi að mæta í partý "ef einhver verða" heheh nei grín.

Vona að ykkur gangi vel í skólanum og að kenna, vona einnig að þessum "xxxxxxx" reglum verði breytt á sanngjarnan hátt, þið verðið að halda áfram að berjast fyrir því þótt aðal "vitleysingurinn" sé farinn:o)

En takk fyrir mig og góð kynni, gangi ykkur vel:o)

Kveðja

Hildur 8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

29.12.2006 01:54:13 / akademian

Til Lukku Guðjón

Guðjón Árni Íþróttamaður Keflavíkur 2006

Knattspyrnumaðurinn Guðjón Árni Antoníusson var fyrr í kvöld kjörinn Íþróttamaður Keflavíkur árið 2006. Alls voru sjö íþróttamenn tilnefndir en athöfnin fór fram í K-Húsinu að Hringbraut í Reykjanesbæ.


Guðjón var í sumarlok kjörinn knattspyrnumaður Keflavíkur en hann átti gott sumar með Keflvíkingum í Landsbankadeildinni, VISA bikarkeppninni og í Evrópuverkefnum Keflavíkurliðsins.

Aðrir sem voru tilnefndir og um leið íþróttamenn sinnar deildar fyrir árið 2006:

Magnús Þór Gunnarsson, körfuknattleiksdeild
Elísa Sveinsdóttir, fimleikadeild
Guðni Emilsson, sunddeild
Karen Guðnadóttir, badmintondeild
Bjarni Sigurðsson, skotdeild
Helgi Rafn Guðmundsson, taekwondodeild

VF-mynd/ jbo@vf.isGuðjón Árni, Íþróttamaður Keflavíkur 2006, með verðlaunagripina í kvöld.



» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 18:26:33 / Sigurlaug

Gleðileg Jól

GLEÐILEG JÓL

HAFIÐ ÞAÐ SEM ALLRA BEST :D

http://www.santagreeting.net/images/20050914094644.JPG
Kveðja
Sigurlaug

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Klukkan